02 December 2012

Prøver meg litt....


Har fått melding fra google når jeg prøver å blogge om at jeg har brukt opp all ledige plassen jeg hadde for bilder... jeg er sta og prøver litt forskjellig før jeg kjøper meg mer bilde plass. Nå forminsket jeg dette bildet men er nysgjerrig om det ser ok ut når jeg velger ekstra stort bilde selv om jeg har lagret det i relativt lite format på pc'n. 

Har tatt en del bilder av jula som sniker seg inn her i heimen som jeg har lyst til å vise dere. Vi har også ferdig oppusset soverom som er det fineste i hele byen synes jeg... og det må jo vises og.... så det har irritert meg veldig de siste dagene at jeg ikke har fått det til å blogge. Men nå jobber jeg med saken..... 


Þegar ég hef reynt að blogga síðustu dagana fæ ég bara upp glugga þar sem það stendur að ég sé búin með myndaplássið mitt og google reynir að fá mig til að kaupa meira myndapláss. Í þrjósku minni hef ég ekki keypt meira pláss, en er að prufa aðrar leiðir til að geta bloggað með myndum.... 
Er búin að taka nokkrar myndir af jólaskrautinu sem kemur smám saman upp úr kössunum hérna. Og svo erum við (lesist maðurinn) búin að taka svefnherbergið í nefið og þar sem við eigum núna bæjarinns fínasta svefnherbergi þarf ég náttúrulega að sýna það :) 
Ætla að sjá hvernig þessi mynd kemur út og þá jafnvel að ég skelli inn einu jóla innleggi á eftir... 


10 November 2012

Når trollmor har lagt sine elleve små troll....


..... Da strikker hun trolltøffler i crazy blå farge. 

Þegar tröllabörnin eru sofnuð prjónar trölla mamma trölla sokka í crazy bláum lit. 



Alt alt for store til største små trollet... men det var jo meninga... 

Allt allt of stórir á stærsta tröllabarnið.... en það var ætlunin... 


Etter et par runder i vaskemaskinen ble de så til tova tøffler

Eftir tvær heimsóknir í þvottavélina urðu þeir svo að þæfðum inniskóm


De ble litt for vide rundt ankelen så da tok hu trollmor de litt sammen og så fikk de på seg rase bil knapp


Þeir urðu aðeins of víðir um ökklan svo að tröllamamman tók þá aðeins saman og festi með kappakstursbíla tölu


Nå passer de perfekt til største små trollet som er storfornøyd og varm på tærne. 

Núna passa þeir fullkomlega á stærsta tröllabarnið sem er yfir sig hamingjusamt og hlýtt á táslunum. 

04 November 2012

Ull strikk


Jeg viste dere tidligere et sniktitt på ull genseren / jakken jeg holdt på å strikke til meg selv. Den var ferdig strikket for noen uker siden og har vært MYE brukt siden.


Ég sýndi ykkur fyrir svolitlu síðan að ég var að prjóna mér ullar peysu/gollu. Peysan rann af prjónunum fyrir nokkrum vikum síðan og er nánast búin að vera í stöðugri notkun síðan. 


Først var jeg litt sur over at den ikke ble like høy opp i halsen som jeg hadde trodd, den er egentlig veldig lav. Jeg kan for eksempel ikke henge den opp på en kleshenger, den renner ned med en gang. Men nå, etter å brukt den en del synes jeg det er veldig greit. Den holder meg varm hele dagen, men jeg får pusterom i og nedenfor halsen og det passer meg veldig bra. Så kan jeg bare ha på skjerf hvis jeg blir kald i halsen.


Fyrst var ég pínu súr yfir því að peysan væri ekki eins há upp í hálsinn eins og ég hélt að hún yrði, hún er eiginlega rosalega lág. Ég get til dæmis ekki hengt hana á herðatré, hún rennur strax af. En núna, eftir að hafa notað hana slatta finnst mér þetta ferlega fínt. Hún heldur mér heitri allan daginn án þess að ég fái svona köfnunar tilfinningu eins og ég fæ ef ég er í fötum sem ná of hátt upp í hálsinn eða þrengja að í hálsinn. Sem sagt þetta hentar mér bara þræl vel. Ég get þá bara skellt á mig klút eða trefli ef mér er kalt í hálsinn. 


Fargen er en behagelig, dus, lilla (er mest riktig på øverste og nederste bildet). Er veldig fornøyd med den. Knappene ser litt ut som bein (selv om de er plastikk) og er i noen natur, brune, hvite og grå farger. 


Liturinn er þægilega, gamaldags fjólublár (efsta og neðsta myndin sýna réttasta litinn). Ég er rosa ánægð með litinn. Tölurnar minna svolítið á bein (þó þær séu úr plasti) og eru í nokkrum náttúru, brúnum, hvítum og gráum litum. 


Mønsteret var veldig enkelt å strikke men er kjempe fint synes jeg. 

Munstrið var mjög auðvelt að prjóna en koma rosalega vel út finnst mér. 


Jeg tror ikke jeg har strikket genser/jakke før som går inn i livet. Det var mye, mye enklere en jeg trodde og gjør at jakken sitter veldig fint. 


Ég held ekki að ég hafi áður prjónað peysu sem er aðsniðin í mittið. Þetta var miklu, miklu auðveldara en ég hélt og gerir það að verkum að peysan situr mjög fallega. 



I dag har jeg ryddet i strikke kurven og lagt ut en del varme små ting i epla-butikken. 

Nå er det på tide å sette seg ned med litt jobbing, skal ha foreldresamtaler de neste to ukene og disse må forberedes godt. Ukedagene går i en fei her i huset med jobb, skole, lekser, treninger, kjøre, hente, bursdager, klesvask, møter og alt det der som barnefamilier har å gjøre. Så da blir det noen ganger sånn at helgene må brukes til jobbing, jeg får det rett og slett ikke til i ukedagene. Men heldigvis synes jeg det er koselig med planleggings jobbing, så det går helt fint å bruke en helge dag i ni og ne til det. Jeg tar meg en god te kopp, tenner lys og koser meg med papirene. 


Í dag er ég búin að taka til í prjóna körfunum og setja slatta af litlum, hlýjum flíkum inn í epla-búðina mína. 

Núna er kominn tími til að ég setjist niður og vinni svolítið. Er að fara að hafa foreldraviðtöl næstu tvær vikurnar og þau þurfa að vera vel undirbúin. Vikudagarnir fjúka hreinlega hérna á þessu heimili. Vinna, skóli, heimavinna, æfingar, keyra, sækja, afmæli, þvottur, fundir og allt þetta sem flestar barnafjölskyldur hafa á planinu. Þá verður það stundum þannig að ég hreinlega næ ekki að gera allt sem ég þarf að gera fyrir vinnuna og það verður til þess að ég þarf að nota helgi í það. Sem betur fer finnst mér undirbúnings vinnan bara ferlega skemmtileg svo að einn og einn helgar dagur inn á milli í vinnu gerir svo sem ekki mikið til. Ég fæ mér góðan tebolla, kveiki mér á kerti og hef það kósý yfir pappírunum :) 


Ha en fin uke folkens! 

28 October 2012

Oppbevaring på badet


I huset vårt har vi bitte bitte lite bad som også er vaskerom... praktiskt... NEI! Så her må plassen brukes godt. Vi har hengt hyller på veggen som oppbevarer mye av det vi bruker hver dag. 
I den største kurven på øverste hylla er det veldig mye rart... hårføner, kremer, bombull, ansiktsfarger til guttene og masse annet rart. I den lille kurven er det enslige sokker, merkelig hvor mange av de vi har hele tiden! Som dere kanskje der er den kurven helt full nå som alltid. 
I kurven med lokk som står i nederste hyllen er det badetøy og svømmebriller. På sommeren bruker vi badetøyet veldig mye, guttene går ofte kun i badebuksa hele dagen men på vinteren er det nesten bare skolesvømming det brukes til, men greit å ha det på badet likevel. 


Í húsinu okkar er oggu pjonku lítið baðherbergi sem er líka þvottahúsið.... praktískst.... NEI!! Svo að hérna þarf að nýta plássið vel. Við höfum hengt upp hillur sem geyma mikið af því sem við notum dags daglega. 
Í stærtu körfunni á efri hyllunni er ýmislegt furðulegt.... hárblásari, krem, bómull, andlitslitir sem strákarnir eiga og annað smotterí. Í litlu körfunni eru einmanna sokkar, merkilegt alveg hvað við erum alltaf með mikið af þeim. Eins og þið kannski sjáið er sú karfa full eins og vanalega.
Í körfunni sem er með loki sem stendur í neðri hyllunni eru sundföt og sundgleraugu. Á sumrin notum við sundfötin nánast daglega og þá eru strákarnir stundum eingöngu í sundbuxum heilu dagana. En á veturna eru sundfötin nánast bara notuð í skólasundið, en samt er fínt að hafa þau á baðinu. 


Små håndkler brukes det mye av og i tillegg til å være lett tilgjengelig synes jeg det ser litt varmere ut når jeg har tekstiler synlig. Do papir er greit å ha lett tilgjengelig og at den er synlig synes jeg er helt greit. Vaskemiddel og mykningsmiddel brukes jo hver dag og er greit å ha på hylla. 
Hva er det du oppbevarer på badet? Synes du det er det greit at vaskemiddel og do papir er synlig på badet?? 


Lítil handklæði eru sífellt í notkun og auk þess að það sé auðvelt að sækja sér þau í hylluna finnst mér hlýlegt að hafa þau sjáanleg. Klósettpappír þarf alltaf að nota og fínt að eiga greiðan aðgang að honum og það að hann sjáist finnst mér hið besta mál. Þvottaefni og mýkingarefni er jú í notkun daglega og er fínt að hafa á hyllunni. 
Hvað ert þú með á baðinu hjá þér? Finnst þér í lagi að þvottaefni og klósettpappír sé sjáanlegt??


21 October 2012

Halloween bursdag

For par uker siden fylte eldste man år men dersom det var i høstferien har vi ventet litt med å invitere guttene i klassen. Men nå var det på tide og da benyttet vi oss av det at det er halloween ting og tang i butikkene og hadde det som tema. 

Fyrir tveim vikum síðan átti eldri guttinn afmæli en þar sem að það var í haustfríinu og sumir af bekkjarfélugunum voru í ferðalögum ákváðum við að bíða aðeins með bekkjarafmælið. Á föstudaginn var svo tími til kominn að bjóða bekkjarbræðrunum í party. Við ákváðum að nýta okkur það að búðirnar eru fullar af halloween dóti og drasli og hafa halloween þema. 

 

Skal du ha tema på en fest er det viktig at invitasjonen er i samme stil, gjestene må liksom skjønne det på denne lappen hva temaet er.  


Ef það á að vera þema í afmæli/veislu er mikilvægt að boðskortið sýni gestunum það. 



Spindelvev i vinduer og tak laget en skummel stemning, ikke minst fordi det var svarte edderkopper som hang rundt i disse. 

Kóngulóarvefir í gluggum og í loftinu gerðu spúkí stemmningu, sérstaklega þar sem að það héngu svartar litlar kóngulær í vefnum. 


Festbordet dekket

Veisluborðið dekkað og klárt


Marsmallows på pinner. Disse er dippet i hvit sjokolade og så i kakestrøssel. Ideen fikk jeg hos Silje. Dette likte guttene kjempe godt, sukker bombe på pinne :) Jeg synes de ble veldig dekorative og fine. 

Sykurpúðar á pinnum. Þessum dýfði ég í brætt, hvítt súkkulaði og svo í kökuskraut. Hugmyndina fékk ég á blogginu hjá Silje. Þetta fannst strákunum ótrúlega gott, sykurbombur á pinna :) Mér fannst þetta verða ótrúlega flott.


Bursdagskaka MÅ også matshe temaet.  

Afmæliskakan einfaldlega verður að vera í stíl við þemað. 


Gele edderkopper. Disse er laget i muffinsformer og plastikk kopper, er ikke mer en 2 cm i høyden. Når geleen hadde stivnet tok jeg det ut av formene, klippet opp lakris lisser og puttet de inn i buken som bein og så brukte jeg glasur som jeg hadde farget mørke grå/svart og sprøytet på øyner. 

Hlaup kóngulær. Hlaup er möst í norskum barnaafmælum og er það yfirleitt borið fram með vanillusósu. Strákarnir mínir skildu nú ekki einu sinni hvernig ætti að borða þetta fyrst þegar þeim var boðið upp á hlaup köku í afmæli en núna er þetta orðinn fastur liður í afmælum hjá okkur líka. Og eins og okkur fannst þetta lítið spennandi og eiginlega stór furðulegt fyrst borðum við þetta öll með bestu lyst núna. 
Ég gerði hlaupið að þessu sinni í muffins form og plastglös, ekki meira en 2 cm þykkt í hvert form. Þegar hlaupið hafði stífnað tók ég það úr formunum, klippti upp lakkrísreimar sem ég potaði inn í svo að úr urðu fætur og svo sprautaði ég augunum á með svörtu glassúr. 


Kaka laget jeg av to kakebunner, den ene vanlig brun sjokoladekake og den andre samme oppskrift uten kakao men kardimomme i stedet. Tykt lag sjokolade krem i mellom bunnene og så oransje smørkrem over hele. Svarte spindelveven er også smørkrem som jeg farget svart og sprøytet på. 

Kökuna gerði ég úr tveimur kringlóttum kökubotnum. Sá efri var venjuleg brún súkkulaðikaka og hinn gerði ég úr sömu uppskrift en sleppti kakóinu og setti kardimommudropa í staðinn. Þykkt lag af súkkulaði kremi á milli botnanna og svo appelsínugult smjörkrem yfir allt. Svarta kóngulóarvefnum sprautaði ég svo yfir með svörtu smjörkremi. 


Den skumle stemninga måtte jo gjestene få med en gang de kom, derfor pyntet vi litt utenfor og. Skjelett på ytterdøra og spindelvev i vinduet i døra. 

Draugalega stemmningin átti að taka á móti gestunum um leið og þeir komu, þess vegna skreyttum við líka fyrir utan. Þessi beinagrind hékk á útidyrahurðinni og glugginn í hurðinni var þakinn kóngulóarvef. 



Gresskarene på trappa ble skikkelig fine! Disse skal få stå så lenge de holder seg fine. De er jo bare så fine når vi har tent lys inne i de på kvelden. 

Graskerin sem Ómar skar út og stóðu á tröppunum urðu ótrúlega flott! Þessi eiga að fá að standa úti eins lengi og þau haldast fín. Þau eru ferlega flott þegar við kveikjum á kertum inni í þeim í myrkrinu á kvöldin. 


Alle guttene hadde med seg lommelykter og pappaen hadde ordnet natursti med masse forskjellige aktiviteter ute i mørket. De ble delt i to lag, jeg løp med det ene laget og mannen med det andre. Aktiviteter var å fange en agurk opp fra en bolle full med vann og bare kunne bruke munnen, gå x antall skritt med spiseskje med rått egg i i munnen uten å miste egget, svare på spørmål, løse mattestykker, gjøre armbøyninger og skru skruer ned i planke med drill. Dette syntes både store og små var kjempe moro og på slutten fikk alle deltagere premie i form av godteri. Denne leken kommer vi helt sikkert til å bruke igjen i barnebursdagene, det er bare å variere på aktivitetene, hvor vanskelige og mange de er. Anbefales! 

I helgen har vi så tatt det rolig, kaffebesøk, bytur og hjemmekos. Litt prøving og laging på kjøkkenet har det også vært, viser dere det snart. 


Allir strákarnir tóku með sér vasaljós og Ómar var búinn að græja ratleik með mismunandi þrautum úti í myrkrinu. Við skiptum þeim í tvö lið, ég var með öðru liðinu og Ómar með hinu. Þrautirnar voru að ná agúrku bita upp úr skál fullri af vatni með því bara að nota andlitið, labba ákveðið mörg skref með matskeið með hráu eggi á í munninum án þess að missa eggið, svara spurningum, leysa stærðfræðidæmi, gera armbeyjur og skrúfa skrúfur niður í spítu með borvél. Þetta fannst bæði okkur og strákunum ferlega skemmtilegt og að lokum fengu allir þátttakendur nammi í verðlaun. Þennan leik komum við pottþétt til með að hafa aftur í barnaafmælum, svo er ekkert mál að breyta fjölda og þyngd þrautanna. Mæli með þessum! 

Um helgina höfum við bara tekið því rólega, heimsókn, bæjarferð og kósýheit heima. Smá tilraunastarfsemi í eldhúsinu líka.... sýni ykkur myndir frá því fljótlega. 

13 October 2012

Høstens vakre farger


Høsten er her og jeg har hentet høstfarger fra naturen inn i huset og kjøpt høstblomster til å pynte med både inne og ute.

Haustið er komið og ég er búin að ná í haustliti úr náttúrunni inn í húsið og er búin að kaupa smá haustblóm til að punta með bæði inni og úti.


I går ettermiddag tok jeg og guttene oss en tur i skogen her bak huset. Det er virkelig et paradis her der vi bor. 

Seinni partinn í gær fóru ég og strákarnir í hjóla/labbi túr í skóginn hérna á bak við húsið okkar. Þetta er virkileg paradís hérna sem við búum. 


Bonden har felt kornet og over alt er det fine gulfarger. 

Bóndinn er búinn að þreskja akrana og út um allt eru fallegir gulir litir.


Fine gul, rød og brun farger på trærne. 

Flottir gulir, rauðir og brúnir litir á trjánum. 


Spreke guttene mine på sykkeltur i skogen.

Spræku strákarnir mínir í hjólatúr í skóginum.


"Jeg gikk en tur på stien og søkte skogen ro...."


Ha en fin høst helg videre.

Eigið áfram góða haust helgi. 


29 September 2012

Høststrikk og lys



Jeg har lilla på pinnene om dagen. Hvis det går som planlagt blir dette en ny høstgenser til meg selv. Men jeg la denne til siden en times tid i dag for å strikke rundt glass. Har ofte tenkt å lage meg sånne men har også så ofte tenkt  at dersom jeg ikke gjorde det med en gang det ble populært nå da var det for sent, at jeg var for sein ute på liksom. Men i dag følte jeg virkelig for å lage meg nye lune lys glass. Ble veldig fornøyd med disse. De er lune og fine med ull i hullstrikk og lyset som kommer fra disse er jo bare sååå koselig. 

Ég er með fjólublátt á prjónunum þessa dagana. Ef að planið mitt gengur upp verður þetta ný haust peysa á sjálfa mig. En ég lagði þetta aðeins til hliðar í dag og prjónaði utan um krukkur. Ómsi hristi hausinn og fannst ég stór skrítin að vera að prjóna utan um krukkur! Ég hef oft hugsað um að gera þetta en svo fannst mér einhvernveginn úr því að ég gerði það ekki strax og þetta varð vinsælt þá væri ég eiginlega orðin of sein... þetta yrði sennilega pukó mjög fljótlega. En í dag langaði mig svo í svona hlýlega kósý kertastjaka svo að ég skellti mér í þetta. Er ferlega ánægð með útkomuna, munsturprjón með fullt af götum og bjarminn sem kemur frá kertunum í gegnum það er ótrúlega kósý. 




Gjenbruk er fint! Gamle glass... tror de er fra pizzasaus eller noe lignende, og ull rester. 

Endurvinnsla er töff! Gamlar krukkur.... ég held að þessar séu af pizzasósu eða einhverju álíka, og ullar restar. 


De står nå på nye bordet i stua sammen med høstblomst og annet dill dall. 

Núna standa þær á nýja borðinu í stofunni með haustblómi og fleira dúlli. 



Lys, lys, lys, lys over alt. Elsker den lune stemninga lysa gir i høstmørket. 

Kerti, kerti, kerti, kerti út um allt. Elska notalegu stemmninguna sem kertin gefa í haustmyrkrinu. 



Denne lysestaken er en av mine favoritter. Den fikk vi av mamma når vi flyttet inn i vår første leilighet for 10 år siden og den har vært oppe på veggen siden (i noen forskjellige leiligheter og hus). Først var de to men for  3 år siden klarte guttene å få den ene i gulvet med stor PANG, gjett om hu mor var sinna da?!  Men er fortsatt kjempe fornøyd med denne selv om den henger alene. 


Þessi kertastjaki er einn af uppáhalds. Við fengum hann frá mömmu þegar við fluttum í fyrstu íbúðina okkar fyrir 10 árum síðan og hann hefur verið uppi á vegg síðan ( í nokkrum mismunandi íbúðum og húsum). Fyrst voru þeir tveir en fyrir þremur árum síðan tókst strákunum að koma hinum í gólfið með miklum látum, þið getið rétt ímyndað ykkur hvað móðirin var reið þá?! En, ég er alltaf jafn ánægð með þennan, líka þó að hann sé einn og einmanna á veggnum. 



Og sånne ser jeg denne kjekke maleren ofte om dagen. Han stor virkelig på oppe på soverommet, flinke, flinke mannen min. 

Ha en fortsatt fin helg! 


Svona sé ég þennan sæta málara ansi oft þessa dagana. Hann er ótrúlega iðinn uppi í svefnherbergi, klári, klári kallinn minn. 

Eigið áfram góða helgi! 

24 September 2012

Mat(pakke)inspirasjon og koselig soverom....


I går ettermiddag laget jeg hjemmelagde små kjøttboller som jeg tenkte at skulle brukes innimellom i matpakker neste måneden eller to.... Og ho mor stekte, og stekte og stekte.... 250 kjøttboller ble det! Dersom alle ble sultne av den gode lukta ble det kjøttboller til middag i går og. Disse er utrolig gode, skal gi dere oppskriften snart. 
I dag er en bitte liten del av kjøttbollene i matboksene. 
Kjøttboller
nanbrød med hvitllø
hjemmelaget tzatiki (kjekt å bruke opp rester)
stjerne kålrot 
blomster gulrot
cheerios på tråd er kjempe populært

Både jeg og gutta var veldig fornøyd med disse boksene :) 


Seinnipartinn í gær ákvað ég að gera heimalagaðar litlar kjötbollur til að eiga í frystinum. Finnst brilliant að eiga eitthvað svona hollt og gott í frystinum sem ég get bara kippt uppúr að morgni og sett í nestisboxin hjá strákunum. Ég byrjaði, blandaði gumsið og steikti og steikti og steikti og steikti.... 250 kjötbollur takk fyrir pent! Við urðum auðvitað öll glorhungruð af þessari góðu lykt sem barst um húsið svo að það urðu kjötbollur í kvöldmatinn (kjötið sem átti eiginlega að vera í matinn var bara sett aftur inn í ísskáp) Þessar bollur eru skrilljón sinnum hollari en þær sem þú getur keypt tilbúnar út úr búð og svo eru þær sjúúúúklega góðar, ætla að skrifa niður uppskriftina og deila henni með ykkur fljótlega. 
Í dag er pjonku lítill hluti af kjötbollufjallinu í nestisboxunum. Svona líta strákanna box út í dag.
Kjötbollur
nan brauð með hvítlauk 
heimalagað tzatiki (algjör snilld að nota smá restaslettur í nestisboxið)
stjörnu rófur
blóma gulrætur
cheerios sem er þrætt upp á band og bundið í hring. Þetta er gasalega vinsælt á þessu heimili. 

Bæði ég og drengirnir vorum hæst ánægð með nestið í dag :) 



Nå har jeg sendt ungene på bussen til skolen og har en time på meg før jeg skal på jobb. Da er det jammen deilig med dusj, god frokost og en liten titt inn i bloggverden. (og sette på en vaskemaskin og tømme oppvaskmaskinen, men det høres bare ikke like koselig ut)
Spansk omelett med poteter (rester igjen) og tomater 
smootie som jeg ikke har prøvd før ved siden av. Denne er veldig frisk og god; appelsin, nektarin og ananas, alt kuttet i biter og mikset sammen i blenderen. 
Tror jammen denne dagen skal bli god med alle disse vitaminene i kroppen. 

Men har jeg snakket om oppussings prosjekter på gang?? her er mannen i full gang på soverommet.... 


Nú er ég búin að fara með strákunum út í strætó sem þeir fara með í skólann og núna hef ég klukkutíma alein heima áður en ég fer í vinnuna. 
Þá er sko kósý að fara í sturtu, gera sér góðan morgunmat og kíkja aðeins á bloggheiminn. (og skella í eina þvottavél og tæma uppþvottavélina, en það hljómar bara ekki eins kósý) 
Spænsk ommeletta með kartöflum (restar frá í gær) og tómötum
og smootie sem ég hef ekki prófað áður með. Þessi er rosa frískur og góður, er úr appelsínu, nektarínum og ananas. Allt skorið í bita og blandað í blandaranum. 
Mikið gasalega held ég að ég verði fersk í dag með öll þessi vítamín í kroppnum! 

En ég var búin að nefna að við erum að taka hitt og þetta í gegn hérna heima.... Ómsinn er í kafi í niðurrifs vinnu í svefnherberginu... 



Sånn ser soverommet vårt ut akkurat nå... koselig eller? hehe det blir nok kjempe fint til slutt men først har vi (les mannen) et kjempe arbeid foran oss (han). Spennende! 

Ha en stålende mandag !! 



Svona lítur svefnherbergið okkar út ákkurar núna.... kósý eða??? hehe þetta verður vonandi rosa flott að lokum en fyrst eigum við (réttara sagt Ómsi) hellings vinnu fyrir höndum. Spennandi! 

Eigið góðan mánudag!!